Walker flutningstaska – pökkunarleiðbeiningar
Walker flutningstaskan samanstendur af aðalflutningstösku og minni geymslu-/burðartösku. Flutningstaskan passar fyrir allar gerðir Walker.
Passar fyrir allar gerðir Trionic Walker.
Opnaðu rennilásinn á geymslutöskunni og taktu aðalflutningstöskuna úr henni.
Opnaðu rennilás aðaltöskunnar alla leið og breiddu flipa töskunnar út á gólfið.
Leggðu Walker á miðhluta aðalflutningstöskunnar. Í aðaltöskunni er innbyggður, bólstraður hlífðarflipi með frönskum rennilás (Velcro). Dragðu bólstraða hlífðarflipann upp og settu hann á milli framgafflanna til að vernda lakkið.