Fremsta bremsutækni í Veloped
Göngugrindur með 100 ára gömlum bremsum?
Allar hefðbundnar göngugrindur eru með sömu ódýru bremsunum og reiðhjól voru með fyrir 100 árum, þar sem bremsan verkar beint á yfirborð dekksins. Yfirleitt er bremsan á hefðbundinni göngugrind aðeins lítill plast- eða málmbútur.
Þessi gerð núningsbremsu krefst grjótharðra gegnheilla dekkja, annars eyðast dekkin á skömmum tíma þar sem bremsan eyðileggur í raun dekkið. Þegar dekkið er blautt missir bremsan virkni sína, þar sem blautt dekkið veitir ekki lengur nauðsynlegan núning.
Fremst í flokki: Trionic All-Terrain-Brake
Þökk sé All-Terrain-Brake kerfi Veloped getur þú alltaf treyst á bestu mögulegu bremsuvirkni, hvort sem þú gengur í sólskini, úrhellisrigningu eða djúpum snjó.
Í stað hefðbundinnar bremsu sem verkar beint á yfirborð dekksins eru allar Veloped-grindur búnar öflugum og einstökum nafbremsum sem eru algjörlega varðar gegn óhreinindum, vatni og snjó.